The Resolution Committee/Interim Board:

On March 21st 2009, the Financial Supervisory Authority assumed the powers of a shareholders’ meeting of SPRON, dismissed the Board and appointed a Resolution Committee. The FSA also assigned New Kaupthing Bank the depository obligations of SPRON, see here. Under Act no. 44/2009 that amended Act no. 161/2002 on Financial institutions, the Resolution Committee became an Interim Board, which had the same obligations as a Resolution Committee.

The Winding-Up Board

In June of 2009, the Interim Board‘s designated three month working period was up, in accordance with Art. 100 a. of the Financial Institutions Act No. 161/2002. On June 23rd, Reykjavik District Court accepted the Interim Board‘s request to appoint a Winding-Up Board to SPRON. The Winding-Up Board‘s primary function is to protect the interests of SPRON‘s creditors, and to oversee the lodging of claims in accordance with Art. 102, par 2, of the Financial Institutions Act No. 161/2002.

Byr annast viðbótarlífeyrissparnað SPRON

24.9.2009

Fréttatilkynning 21. september 2009

 

Byr annast viðbótarlífeyrissparnað SPRON og nb.is
Yfirfærslan er viðskiptavinum að kostnaðarlausu

Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is. Færist sparnaðurinn sjálfkrafa til Byrs, þeim að kostnaðarlausu, hálfum mánuði eftir að þeim berst kynningarbréf þess efnis. Það verður sent út næstu daga.

Samkvæmt samningi við slitastjórn SPRON og nb.is mun Byr annast ávöxtun á verðtryggðum sparnaði ásamt þjónustu við viðskiptavini en Íslensk verðbréf (ÍV) munu sjá um stýringu á verðbréfatengdum eignum.  Slitastjórnin gekk til samninga við Byr og ÍV að undangengnu útboði. Félagið Íslensk verðbréf var stofnað árið 1987 og sérhæfir það sig í eignastýringu fyrir fjárfesta, stóra og smáa. Lífeyrissjóðir eru meðal stærstu viðskiptavina en heildareignir í stýringu hjá ÍV nema nú um 90 milljörðum króna.

Eins og áður sagði mun viðbótarlífeyrissparnaður SPRON og nb.is færast sjálfkrafa til Byrs tveimur vikum eftir að viðskiptavinum berst kynningarbréf þess efnis nema þeir óski annars. Viðbótarlífeyrissparnaðurinn færist til Byrs, sjóðsfélögum að kostnaðarlausu.  

Eigendur viðbótarlífeyrissparnaðar SPRON og nb.is geta þeir nú fengið alla þjónustu vegna sparnaðar síns í heimabanka Byrs. Þeir sem ekki hafa haft aðgang geta nálgast notandanafn og lykilorð í heimabanka undir rafrænum skjölum.  Þá veita þjónustufulltrúar útibúa sparisjóðsins allar frekari upplýsingar. Senda má fyrirspurnir vegna lífeyrissparnaðar á netfangið byr@byr.is eða hafa samband við ráðgjafa í síma 575-4000.


  Nánar um þjónustu vegna lífeyrissparnaðar hjá Byr 

Netfang: byr@byr.is
Sími ráðgjafa: 575-4000