Slitastjórn SPRON kynnir lántakendum hjá SPRON skuldbreytingarlausn sem tekur bæði á vanda vegna höfuðstóls erlendra lána og aukins greiðsluþunga eftir fall íslensku krónunnar.
- Lækkun höfuðstóls erlendra lána um 26% að meðaltali
- Allt að 41% minni greiðslubyrði
- Úrræðið stendur til boða til loka febrúar 2010
Lántakendum SPRON stendur til boða 26% lækkun höfuðstóls að meðaltali þegar láni er skuldbreytt í íslenskar krónur. Lækkunin tekur mið af myntsamsetningu og lengd lánasamnings. Við skuldbreytinguna verður lánið að íslensku verðtryggðu láni, 25 eða 40 ára, með föstum 3,95% vöxtum í þrjú ár og möguleika á lengingu um eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Eftir það verða fastir vextir lánsins 5,25%.
Jafnframt standa lántakendum til boða fastir óverðtryggðir 6,00% vextir í þrjú ár með lengingu í eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Þeir vextir breytast síðan í millibankavexti (REIBOR) + 1,50% en viðskiptavinum er einnig frjálst að skipta yfir í fasta verðtryggða 5,25% vexti.
Með aðgerð þessari geta lántakendur lækkað greiðslubyrði sína af erlendum fasteignalánum um allt að 41% og um allt að 20% ef miðað er við greiðslubyrði eftir greiðslujöfnun erlends láns.
Úrræði þessi mynda greiðsluskjól til næstu ára og kemur til móts við þarfir heimila sem glíma við skerta greiðslugetu eða of háa skuldabyrði vegna erlendra lána. Úrræðið stendur viðskiptavinum til boða út árið 2010.
Slitastjórn SPRON tekur auk þess þátt í úrræðum ríkisstjórnarinnar að því er varðar greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun.
Útibú Arion banka annast alla þjónustu við lántakendur SPRON.