The Resolution Committee/Interim Board:

On March 21st 2009, the Financial Supervisory Authority assumed the powers of a shareholders’ meeting of SPRON, dismissed the Board and appointed a Resolution Committee. The FSA also assigned New Kaupthing Bank the depository obligations of SPRON, see here. Under Act no. 44/2009 that amended Act no. 161/2002 on Financial institutions, the Resolution Committee became an Interim Board, which had the same obligations as a Resolution Committee.

The Winding-Up Board

In June of 2009, the Interim Board‘s designated three month working period was up, in accordance with Art. 100 a. of the Financial Institutions Act No. 161/2002. On June 23rd, Reykjavik District Court accepted the Interim Board‘s request to appoint a Winding-Up Board to SPRON. The Winding-Up Board‘s primary function is to protect the interests of SPRON‘s creditors, and to oversee the lodging of claims in accordance with Art. 102, par 2, of the Financial Institutions Act No. 161/2002.

Íslensk verðbréf taka við rekstri og vörslu sjóða Rekstrarfélags SPRON hf

9.6.2009

Fréttatilkynning
9. júní 2009

Bráðabirgðastjórn SPRON hefur gert samkomulag við Íslensk verðbréf (ÍV) um að taka að sér þjónustu á sviði vörslu og eignastýringar við viðskiptavini sem áður voru hjá SPRON og SPRON Verðbréfum.

Samhliða hefur verið samið um að Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. taki við rekstri sjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf. Markmið samkomulagsins, sem þegar hefur tekið gildi, er að koma þjónustu við viðskiptavini SPRON og SPRON Verðbréfa í eðlilegt horf sem fyrst.

Sjóðir Rekstrarfélags SPRON hf.
Flutningur gagna og önnur undirbúningsvinna stendur nú yfir og verður hraðað eins og kostur er. Stefnt er að því að opna Áskriftarsjóð ríkisverðbréfa og innlenda hlutabréfasjóði síðar í þessari viku.. Viðskiptavinir sjóða Rekstrarfélags SPRON geta snúið sér til Íslenskra verðbréfa og fengið þar nánari upplýsingar, þær er jafnframt að finna á heimasíðu ÍV www.iv.is.
 
Eignastýring og varsla
Þjónusta við viðskiptavini í vörslu og eignastýringu SPRON Verðbréfa færist til Íslenskra verðbréfa og geta viðskiptavinir í framhaldinu nálgast yfirlit, sótt ráðgjöf og fengið aðra almenna þjónustu á sviði eignastýringar og vörslu hjá Íslenskum verðbréfum. 

Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa:
„Þessi samningur er mjög þýðingarmikill bæði fyrir viðskiptavini SPRON og Íslensk verðbréf sem hafa yfir 20 ára reynslu á sviði eignastýringar. Við tökumst á við þetta verkefni af fagmennsku og viljum láta viðskiptavini SPRON finna frá upphafi að fjármunir þeirra eru komnir í örugga vörslu og stýringu hjá okkur.“

Formaður bráðabirgðastjórnar SPRON:
„Að vandlega athuguðu máli og eftir viðræður við fleiri aðila, sem teljast hæfir til að taka að sér þetta verkefni, var ákveðið að ganga til samninga við Íslensk verðbréf um þjónustu og umsýslu eigna sem tengjast sjóðum Rekstrarfélags SPRON hf. og eignastýringu SPRON Verðbréfa. Íslensk verðbréf hafa áratuga reynslu á þessu sviði og við treystum þeim til að veita viðskiptavinum SPRON trausta þjónustu.“

Um Íslensk verðbréf
Íslensk verðbréf er eitt elsta starfandi fjármálafyrirtæki landsins, stofnað árið 1987. Eignir í stýringu nema um 100 milljörðum króna og starfsmenn eru 19 talsins. Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem sinnir hvorki útlánastarfsemi né fyrirtækjaráðgjöf, heldur einbeitir sér að því að ná hámarksárangri á sviði eignastýringar. Einu fjárfestingar Íslenskra verðbréfa fyrir eigin reikning eru í sjóðum félagsins. Með þessu er komið í veg fyrir hagsmunaárekstra milli félagsins annars vegar og viðskiptavina hins vegar þegar kemur að góðum fjárfestingarkostum á markaði.

Nánari upplýsingar:
Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, sími 460 4700.
Arne Vagn Olsen, forstöðumaður markaðs-og sölusviðs Íslenskra verðbréfa, sími 460 4700.