The Resolution Committee/Interim Board:

On March 21st 2009, the Financial Supervisory Authority assumed the powers of a shareholders’ meeting of SPRON, dismissed the Board and appointed a Resolution Committee. The FSA also assigned New Kaupthing Bank the depository obligations of SPRON, see here. Under Act no. 44/2009 that amended Act no. 161/2002 on Financial institutions, the Resolution Committee became an Interim Board, which had the same obligations as a Resolution Committee.

The Winding-Up Board

In June of 2009, the Interim Board‘s designated three month working period was up, in accordance with Art. 100 a. of the Financial Institutions Act No. 161/2002. On June 23rd, Reykjavik District Court accepted the Interim Board‘s request to appoint a Winding-Up Board to SPRON. The Winding-Up Board‘s primary function is to protect the interests of SPRON‘s creditors, and to oversee the lodging of claims in accordance with Art. 102, par 2, of the Financial Institutions Act No. 161/2002.

Lífeyrissparnaður SPRON - leiðir 2, 3 og 4 - skipting eigna í A og B deild

17.8.2009

Leiðir 2, 3 og 4 voru að hluta til fjárfestir í sjóðum sem nú eru í slitaferli.  Það þýðir að ekki er hægt að selja viðkomandi eignir heldur munu þær innheimtast eftir aðstæðum og greiðslugetu viðkomandi skuldara á hverjum tímapunkti.

Til að aðskilja þær eignir sem eru seljanlegar og þær sem eru bundnar hefur leiðum 2,3 og 4 verið skipt upp í A og B deildir að fenginni heimild Fjármálaeftirlitsins.  Breytingin miðast við stöðu 31. júlí 2009.  A deildir innihalda seljanlegar eignir og B deildir innihalda eignir sem eru bundnar.  Þegar losnar um eignir í B deild verða þær sjálfkrafa fluttar yfir í A deild.   Í töflunni hér að neðan má sjá hvernig skiptingu einstakra leiða er háttað.  

 

Heiti leiðar

Hlutfall í A deild

(laust)

Hlutfall í B deild

(bundið)

Leið 1

100%

0%

Leið 2

63,45%

36,55%

Leið 3

48,91%

51,09%

Leið 4

80,40%

19,60%

Leið 5

100%

0%

Leiðir 2, 3 og 4 - skerðing á tímabundinni útborgun lífeyris
Skv. breytingum á lögum 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, sem samþykkt voru á Alþingi í mars s.l.  geta rétthafar sótt um tímabundna útgreiðslu séreignasparnaðar fyrir allt að 1 mkr. króna.  Í tilfelli leiða 2, 3 og 4 er þó óhjákvæmilegt að skerða útgreiðslur þar sem einungis er hægt að greiða út úr A deildum þeirra án skerðingar.

Skerðingin kemur til framkvæmda í næstu útborgun sem greidd verður í ágúst og er gerð að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins. Útgreiðslur skerðast ekki fyrr en öll inneign í A deildum er að fullu útgreidd. Viðskiptavinir geta  afturkallað umsóknir um fyrirframgreiðslu lífeyris hjá SPRON og sótt um hjá öðrum sjóði ef sá möguleiki er fyrir hendi. 

 

Slitastjórn SPRON vinnur nú að samkomulagi með Fjármálaeftirlitinu um nýjan þjónustuaðila sem  mun sjá um að þjónusta og halda utan um þinn lífeyrissparnað.  Vonast er til að niðurstöður verði kynntar þér innan tíðar.