Öllum afgreiðslustöðum SPRON hefur verið lokað.
.
Innlán, útlán og kortaviðskipti
Allar upplýsingar um útlán, innlán, yfirdrætti og kortaviðskipti er að fá hjá Kaupþingi. Jafnframt upplýsingar varðandi innheimtuþjónustu og greiðsluþjónustu/útgjaldadreifingu. Viðskiptavinum er bent á að snúa sér til næsta útibús Kaupþings eða þjónustuvers Kaupþings sem svarar fyrirspurnum í síma 444-7000.
Lífeyrissparnaður
Þeir sem óska eftir upplýsingum um lífeyrissparnað er bent á að senda tölvupóst á netfangið lifspar@spron.is. Þeir sem óska eftir fyrirframgreiðslu lífeyrissparnaðar allt að kr. 1.000.000 eða óska eftir að hefja töku lífeyris (60 ára og eldri) geta komið í Lágmúla 6 (afgreiðsla Frjálsa fjárfestingarbankans) og fyllt út viðeigandi eyðublöð.
Skilagreinar vegna iðgjalda lífeyrissparnaðar sendast á skilagreinar@arion.is.
Reikningsyfirlit og yfirlit vegna skattframtals
Viðskiptavinum SPRON er bent á að senda tölvupóst á netfangið infout@spron.is sé óskað eftir yfirlitum eða upplýsingum færslur sem gerðar voru fyrir 21. mars 2009, skattframtölum og upplýsingum vegna þrotabúa. Erindum verður svarað eins fljótt og unnt er.
Íslensk verðbréf hefur tekið að sér þjónustu við viðskiptavini sem áður voru SPRON Verðbréfum. Nánari upplýsingar veitir Íslensk verðbréf í síma 460-4700 eða á netfanginu iv@iv.is. Sjá nánar á vef Íslenskra verðbréfa www.iv.is.
Geymsluhólf
Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is
.