Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Fréttatilkynning 10.5.2012

  • Búið er að greina þau álitaefni sem nauðsynlegt er að láta reyna á fyrir dómi.
  • Ekki er hægt að hefja endurútreikning íbúðalána sem falla undir dóm Hæstaréttar frá því í febrúar, vegna óvissu um reikningsaðferð.
  • Velja þarf gaumgæfilega þau mál sem skjóta þarf til dómstóla til að skera úr um óvissuþætti.
  • Aðilar samstarfsins eru sammála um að reynt verði að tryggja að málarekstur verði lántakendum að kostnaðarlausu og að umboðsmaður skuldara gæti hagsmuna þeirra.
  • Óskað verður eftir flýtimeðferð hjá dómstólum. Verði þeir við þeirri beiðni gætu fyrstu dómar legið fyrir í haust.

Fastar greiðslur af endurreiknuðum lánum 2.4.2012


Einstaklingum með íbúðalán hjá SPRON sem hafa verið endurreiknuð býðst nú að greiða af lánum sínum með föstum greiðslum en þær nema 5.000 krónur af hverri upprunalegri milljón lánsins. Óvissa er um fordæmisgildi dóms Hæstaréttar frá því í febrúar og ljóst að einhvern tíma mun taka að eyða þeirri óvissu. Þangað til gefst lántökum SPRON kostur á að breyta mánaðarlegum afborgunum sínum með þessum hætti.

 

Eingöngu er hægt að óska eftir föstum greiðslum á ógreidda gjalddaga láns. Ef óskað er eftir að næsti gjalddagi verði föst greiðsla þarf að gæta þess að gjalddaginn sé ekki greiddur t.d. með sjálfvirkri skuldfærslu í greiðsluþjónustu. Afskrá þarf sjálfvirku skuldfærsluna áður en skuldfærslan á sér stað.

 

Sækja þarf um fastar greiðslur hjá Arion banka.

Dómur Hæstaréttar um endurútreikning – Heimsendir greiðsluseðlar 16.3.2012


Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm þann 15. febrúar 2012 í máli nr. 600/2011 er varðaði endurreikning og uppgjör gengistryggðs láns.  Í stuttu máli var niðurstaða dómsins sú að meginreglan er að reikna beri óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands frá upphafi.  Hins vegar séu í undantekningartilvikum skilyrði til að víkja frá meginreglunni.  Ekki megi innheimta hjá lántakendum viðbótargreiðslur fyrir gjalddaga þar sem fullnaðarkvittun liggur fyrir.

 

Lántakendum með lán sem falla beint undir dóminn hefur verið sent bréf þar sem farið er yfir næstu skref í málum þeirra. Áfram er vinna í gangi varðandi önnur lán sem dómurinn gæti náð til, meðal annars á samráðsvettvangi fjármálafyrirtækja sem Samkeppnisstofnun hefur heimilað. Viðskiptavinir verða upplýstir jafnóðum um framgang þeirrar vinnu.

 

Lántakendum með lán sem ekki falla beint undir dóminn, þ.e.a.s. lán þar sem ekki var greitt af öllum gjalddögum lánsins, ráðleggjum við að greiða áfram heimsenda greiðsluseðla þangað til skýr niðurstaða liggur fyrir um annað. Eins og fyrrnefndur dómur ber með sér verja lánþegar hagsmuni sína best með því að halda lánum sínum í skilum.

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is


 
Umboðsmaður skuldara