Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Viðmið SPRON við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja

Með lögum nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins, var kveðið á um leiðir og viðmið til að hraða endurreisn íslensks efnahagslífs og koma á jafnvægi á virði eigna og greiðslugetu annars vegar og fjárskuldbindinga hins vegar. Með lögunum er fjármálafyrirtækjum m.a. fengið það hlutverk að setja reglur um skuld- og skilmálabreytingar sem kunna að leiða til eftirgjafar skulda eða annarra ívilnana fyrir skuldara. Fjármálafyrirtæki hafa sett slíkar reglur sameiginlega á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF), og voru reglurnar samþykktar af Fjármálaeftirlitinu þann 3. mars 2010 (hér nefndar SFF reglurnar). Slitabú Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON) fylgir þessum reglum . SPRON hefur að auki sett sér viðmið, reglum SFF til fyllingar og eru þær í PDF-skjali í tenglinum hér fyrir neðan. 

Viðmið SPRON við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja

Sameiginlegar reglur fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is


 
Umboðsmaður skuldara