Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Greiðslujöfnun - Aðgerðir ríkisstjórnar

5.11.2009

Þjónusta vegna lána sem voru hjá SPRON og nb.is-sparisjóði er hjá Arion banka. Lántakandi getur afþakkað greiðslujöfnun fmeð því fylla út form á vef Arion banka eða farið í næsta útibú bankans. Óska þarf eftir afturköllun á greiðslujöfnun 10. dögum fyrir næsta gjalddaga láns.

Greiðslujöfnun verðtryggðs íbúðaláns gerir lántakendum kleift að lækka mánaðarlegar greiðslur af íbúðalánum sínum.

Helstu atriði:

  • Mánaðarlegar afborganir lækka a.m.k. tímabundið á þeim lánum , sem bera fasta vexti.
  • Gera má ráð fyrir því að í lok lánstíma muni lántaki hafa greitt meira fyrir lán sem er greiðslujafnað.
  • Hægt er að afþakka úrræðið hvenær sem er.
  • Greiðslubyrði tekur mið af greiðslujöfnunarvísitölu í stað vísitölu neysluverðs.
  • Ekki eru til einhlít svör við því hvenær greiðslujöfnun á við þar sem óvissuþættir eru margir.

Sjá nánar á vef Arion banka.

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is


 
Umboðsmaður skuldara