Umboðsmaður skuldara ákvað að leita til Raunvísindastofnunar Háskólans í aprílbyrjun til að fá hlutlaust og faglegt mat á endurútreikningum fjármálafyrirtækjanna á gengislánum. Var það gert með þeim hætti að sömu raunhæfu dæmin voru send til allra fjármálafyrirtækja til að unnt væri að greina hvort þau væru að standa að endurútreikningi með sambærilegum hætti, en markmið laga nr. 151/2010 var meðal annars að tryggja samræmi í endurútreikningum.
Við skoðun Raunvísindastofnunar kom í ljós að Landsbankinn, Íslandsbanki, Arion banki, Byr og Drómi hf. (SPRON) reikna húsnæðislán með sama hætti. Drómi og Avant reikna bílalánin sömuleiðis með sömu aðferð.
Í greinagerð Raunvísindastofnunar segir:
"Aðalniðurstaða greinargerðarinnar er að fjármálafyrirtækin fylgja fyrirmælum laganna um endurútreikninga í meginatriðum. Flest fylgja þau sömu aðferð og höfundar telja að sé í bestu samræmi við lögin, með þeirri undantekningu að þrjú fyrirtæki reikna bílalán með öðrum hætti, sem gefur nokkru hærri eftirstöðvar."
Útibú Arion banka annast alla þjónustu vegna lána sem áður voru hjá SPRON og nb.is.