Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Óvissa um réttarstöðu erlendra fasteignalána

23.9.2010
Nýfallinn dómur Hæstaréttar, sem fjallaði um hvaða vextir skuli gilda um ólögleg gengistryggð bílalán, hefur dregið úr óvissu sem ríkt hefur um þann lánaflokk, en honum tilheyra bílasamningar, kaupleigusamningar og einkaleigusamningar, allir með gengistryggingu. Í framhaldi dómsins boðaði efnahags- og viðskiptaráðherra lagasetningu en ekki er ljóst á þessari stundu hvað sú lagasetning mun fela í sér, sérstaklega ekki til hvaða flokka erlendra fasteignalána þeim er ætlað að ná til. SPRON getur ekki brugðist við fyrr en ljóst er með hvaða hætti lögin gera ráð fyrir að lán breytist en mál þessi verða tekin til skoðunar þegar niðurstaða liggur fyrir.

Í héraðsdómi hafa fallið tveir úrskurðir í málum varðandi fasteignaveðlán í erlendum myntum. Úrskurðum þessum verður skotið til Hæstaréttar. Þess er vænst að niðurstaða Hæstaréttar muni greiða úr álitamálum varðandi þessa tegund erlendra skuldabréfalána, en fyrri dómar Hæstaréttar um gengistryggð lán vörðuðu bílasamninga.

SPRON mun áfram að bjóða viðskiptavinum sínum upp á greiðsluúrræði á meðan óvissa ríkir um þessi mál. Hvetjum við viðskiptavini til að nýta sér úrræðin og beinum við sérstaklega athygli viðskiptavina að kr. 5000 af hverri upprunalegu milljón úrræðinu. Sjá nánar hér.

Skrifstofa Dróma hf. (Slitastjórn SPRON og Frjálsa) er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 10:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.


.