Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Sala eigna SPRON

26.3.2009

Skilanefnd auglýsti í gær eftir aðilum sem hefðu áhuga á eigum SPRON og hafa yfir 200 aðilar sent inn fyrirspurnir og lýst yfir áhuga. Ekki var um tilboðsfrest að ræða heldur eingöngu frestur til þess að lýsa yfir áhuga á kaupum. 

Fyrirspurnunum má skipta niður í eftirfarandi flokka:

1)Dótturfélög og útibú
2)Stærri eignir (fasteignir, fasteignaverkefni og  eignarhlutir í öðrum félögum)
3) Lausafjármunir (tölvubúnaður, skrifstofubúnaður, bifreiðar, listmunir og fleira.)

Sú vinna sem nú stendur yfir snýr að athugun á fýsileika þess að selja verðmæti sem tilgreind eru í lið 1 hér að ofan.  Á annan tug aðila hafa lýst yfir áhuga á þessum eignum SPRON.  Verið er að vinna úr innsendum fyrirspurnum og útbúa söluupplýsingar sem áhugasömum aðilum verður gefinn kostur á að kynna sér og verður unnt að senda inn formleg tilboð í framhaldi af því.   Skilanefnd leggur áherslu á að ferlið verði eins gagnsætt og framast er kostur. 

Engin ákvörðun hefur verið tekin um sölu stærri eigna SPRON og lausafjármuna, en stærsti hluti fyrirspurna varðaði þessar eignir. Ákvörðun þar að lútandi verður kynnt opinberlega síðar. 

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is