Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Þjónusta við viðskiptavini SPRON

3.4.2009

Öllum afgreiðslustöðum SPRON hefur verið lokað.
.

Innlán, útlán og kortaviðskipti

Allar upplýsingar um útlán, innlán, yfirdrætti og kortaviðskipti er að fá hjá Kaupþingi. Jafnframt upplýsingar varðandi innheimtuþjónustu og greiðsluþjónustu/útgjaldadreifingu. Viðskiptavinum er bent á að snúa sér til næsta útibús Kaupþings eða þjónustuvers Kaupþings sem svarar fyrirspurnum í síma 444-7000.

Lífeyrissparnaður

Þeir sem óska eftir upplýsingum um lífeyrissparnað er bent á að senda tölvupóst á netfangið lifspar@spron.is. Þeir sem óska eftir fyrirframgreiðslu lífeyrissparnaðar allt að  kr. 1.000.000 eða óska eftir að hefja töku lífeyris (60 ára og eldri) geta komið í Lágmúla 6 (afgreiðsla Frjálsa fjárfestingarbankans) og fyllt út viðeigandi eyðublöð.
Skilagreinar vegna iðgjalda lífeyrissparnaðar sendast á skilagreinar@arion.is.

Reikningsyfirlit og yfirlit vegna skattframtals

Viðskiptavinum SPRON er bent á að senda tölvupóst á netfangið infout@spron.is sé óskað eftir yfirlitum eða upplýsingum færslur sem gerðar voru fyrir 21. mars 2009,  skattframtölum og upplýsingum vegna þrotabúa. Erindum verður svarað eins fljótt og unnt er.

Íslensk verðbréf hefur tekið að sér þjónustu við viðskiptavini sem áður voru SPRON Verðbréfum. Nánari upplýsingar veitir Íslensk verðbréf í síma 460-4700 eða á netfanginu iv@iv.is. Sjá nánar á vef Íslenskra verðbréfa www.iv.is.

Geymsluhólf

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is

.

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is