Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Veðskuldir færðar niður í 110% af verðmæti eigna

27.5.2011

Aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila

Veðskuldir færðar niður í 110% af verðmæti eigna.

Samkomulag um nánari útfærslu aðgerða í þágu yfirveðsettra heimila var undirritað þann 15. janúar. Samkomulagið er í samræmi við viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og lánveitenda sem var samþykkt þann 3. desember 2010.

Helstu efnisatriði samkomulagsins eru þessi:

  • Heimilum þar sem áhvílandi veðskuldir eru umfram 110% af verðmæti fasteignar, býðst að færa veðskuldir sínar niður að 110% af verðmæti eigna. Umsækjandi og/eða maki hans, eftir því sem við á, skulu vera eigendur eignanna og greiðendur áhvílandi lána og að eignin sé notuð til heimilishalds umsækjanda.
  • Sett er upp styttri leið fyrir lántaka sem óska eftir niðurfellingu um allt að 4 m.kr. fyrir einstaklinga og 7 m.kr. fyrir einstæða foreldra, sambýlisfólk og hjón. Tekið verður tillit til annarra aðfararhæfra eigna. Ef veðrými er á þeim eignum, lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur.
  • Hjá SPRON mun lækkun skulda einnig takmarkast við að greiðslubyrði umsækjanda af lánum sem samkomulagið tekur til verði ekki lægra en sem svarar 18% af brúttó tekjum eftir beitingu úrræðisins.
  • Lántakar sem eru með veðsetningu umfram 110% af verðmæti fasteignar, þrátt fyrir lækkun veðskulda um 4 m.kr. vegna einstaklings eða 7 m. kr. vegna hjóna, geta óskað eftir frekari niðurfellingu. Niðurfellingin getur í heild numið allt að 15 m.kr. fyrir einstaklinga og 30 m.kr. fyrir einstæða foreldra, sambýlisfólk og hjón en skilyrði er að greiðslubyrði umsækjanda af lánum, sem samkomulagið tekur til, fari ekki niður fyrir 18% af brúttótekjum heimilis.
  • Skuldir sem færa má niður samkvæmt samkomulaginu eru skuldir sem stofnað var til vegna fasteignakaupa umsækjanda á árunum fyrir 2009 og hvíla með veði á eign sem er til heimilishalds lántaka og uppfylla rétt til vaxtabóta. Þó eru undanskilin lán sem veitt voru til endurbóta af Íbúðalánasjóði og voru yfir fasteignamati hinnar veðsettu eignar við lánveitingu.
  • Þegar um gengistryggð lán er að ræða er miðað við höfuðstól þeirra að loknum endurútreikningi samkvæmt ákvæðum nýsettra laga nr. 151/2010 um endurreikning gengistryggðra lána og mat á skuldastöðu miðað við þannig endurreiknaðar eftirstöðvar þeirra lána.
  • Þeir lántakar, sem hafa þegar fengið niðurfellingu skulda sinna niður í 110% af verðmæti eigna sinna á grundvelli annarra úrræða, geta átt þess kost að fá frekari niðurfellingu að uppfylltum skilyrðum þessa samkomulags.
Lántaki skal snúa sér til þess lánveitanda íbúðaláns sem er á aftasta veðrétti. Sá lánveitandi, sem lántaki leitar til, heldur utan um málið gagnvart öðrum lánveitendum.Unnt er að sækja um niðurfellingu skulda samkvæmt samkomulaginu fram til 1. júlí 2011.Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
 

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is


 
Umboðsmaður skuldara