Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Innköllun krafna

Hverjir geta lýst kröfu í bú SPRON?
Allir sem telja sig eiga kröfu á SPRON, hvort sem það er vegna skulda eða annarra réttinda, hvort sem það er á SPRON eða eignir í umráðum SPRON, eiga rétt á að lýsa kröfu í bú SPRON.

Tímamörk
Innköllun birtist í Lögbirtingablaðinu þann 22. júlí og 29. júlí 2009 og skal lýsa kröfum í bú SPRON innan sex mánaða frá þeim tíma, þ.e. fyrir 22. janúar 2010. Frestdagur er  30. október 2008 sbr. 4. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Upphafsdagur slitameðferðar miðast við uppkvaðningu Héraðsdóms Reykjavíkur um skipun slitastjórnar þann 23. júní 2009, sbr. 2. ml. 3. mgr. 102. gr.  laga nr. 44/2009. 

Efni
Efni kröfulýsingar skal vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991. Í kröfulýsingu skal koma fram sundurliðuð fjárhæð kröfu miðað við 23. júní 2009. Upplýst skal um netfang kröfuhafa, eða umboðsmanns hans. Tilgreina skal bankareikning til að auðvelda útgreiðslu, þegar og ef til hennar kemur.

Kröfulýsingar skulu vera skriflegar og sendast á:
Slitastjórn SPRON
Lágmúla 6
108 Reykjavík

Fyrirspurnir má senda á netfangið slitastjorn@spron.is

Dæmi um kröfulýsingu

Gjaldþrotalög
Lög um fjármálafyrirtæki

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is