Innlán, útlán og kortaviðskipti 
Allar upplýsingar um útlán, innlán, yfirdrætti og kortaviðskipti er að fá hjá Arion banka. Jafnframt upplýsingar varðandi innheimtuþjónustu og greiðsluþjónustu/útgjaldadreifingu. Arion banki tekur á móti beiðnum um breytingar á skuldabréfalánum. Viðskiptavinum er bent á að snúa sér til næsta útibús Arion banka eða þjónustuvers Arion banka sem svarar fyrirspurnum í síma 444-7000.
Slitastjórn SPRON lýsir því yfir að þeir viðskiptavinir bankans sem undirrita skilmálabreytingar húsnæðislána, t.d. vegna greiðslujöfnunar og frystingar, fyrirgeri ekki réttindum sínum til að óska eftir öðrum úrræðum síðar, þ.e. þeim sem bjóðast í framtíðinni, enda uppfylli þeir skilyrði fyrir nýtingu úrræðanna. Sama gildir um önnur réttindi sem neytendur kunna að njóta samkvæmt lögum. Skilmálabreyting á erlendu láni yfir í íslenskt er þó endanleg og verður ekki endurskoðuð síðar.
Slitastjórn SPRON er aðili að samkomulagi um greiðslujöfnun fasteignaveðlána og samkomulagi um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun. Einnig tekur slitastjórn tillit til samkomulags um greiðslujöfnun bílalána.
Reikningsyfirlit 
Hægt er að sækja afrit reikningsyfirlita í Netbanka Arion banka. Í Netbankanum er valið Rafræn skjöl og síðan Reikningsyfirlit frá Arion banka. Hægt er að skoða og prenta út reikningsyfirlit sjö ár aftur í tímann.
Lífeyrissparnaður 
Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði verði vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnar SPRON og Netbankans nb.is. Eigendur viðbótarlífeyrissparnaðar SPRON og nb.is geta þeir nú fengið alla þjónustu vegna sparnaðar síns í heimabanka Byrs. Þeir sem ekki hafa haft aðgang geta nálgast notandanafn og lykilorð í heimabanka undir rafrænum skjölum. Þá veita þjónustufulltrúar útibúa sparisjóðsins allar frekari upplýsingar. Senda má fyrirspurnir vegna lífeyrissparnaðar á netfangið byr@byr.is eða hafa samband við ráðgjafa í síma 575-4000. Sjá nánar á vef Byrs.
Skilagreinar vegna iðgjalda lífeyrissparnaðar sendast á skilagreinar@arion.is.
Verðbréfaviðskipti 
Íslensk verðbréf hefur tekið að sér þjónustu við viðskiptavini sem áður voru SPRON Verðbréfum. Nánari upplýsingar veitir Íslensk verðbréf í síma 460-4700 eða á netfanginu iv@iv.is. Sjá nánar á vef Íslenskra verðbréfa www.iv.is.
Geymsluhólf
Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is