Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Spurt og svarað um Höfuðstólslækkun 3+1

 

Af hverju er bankinn að lækka höfuðstól erlendra lána?

Úrræðið myndar greiðsluskjól til næstu ára og kemur til móts við þarfir heimila sem glíma við skerta greiðslugetu eða of háa skuldabyrði vegna erlendra lána.

 


Hve lengi verður úrræði í boði?

Úrræðið stendur viðskiptavinum til boða út árið 2010.

 


Fyrir hverja eru lausnir í boði?

Fyrir alla einstaklinga sem eru með fasteignaveðlán í erlendri mynt. Ef styttra er eftir af lánstíma en 2 ár er ekki hægt að fá lækkun höfuðstóls. Hver og einn verður að vega og meta kosti þess að breyta láni sínu með þessum hætti, eða halda upprunalegu láni sínu með þeim kjörum sem á því eru.

Þar sem þetta úrræði hefur í för með sér lægri höfuðstól láns er líklegt að hún komi þeim mest til góða sem hyggjast selja eign sína eða greiða lánið upp á næstu misserum eða þá sem ekki ráða við greiðslubyrgði af greiðslujöfnun ríkisins.

 

Ef gerð hefur verið skilmálabreyting á erlendu láni eftir 1. des. 2009 sem lengir lánið er ekki hægt að sækja um þetta úrræði.

 


Hver er kostnaður lántakanda?

Skilmálabreyting kostar kr. 10.000 samkvæmt verðskrá bankans. Greiða þarf þinglýsingargjald kr. 2.000 við þinglýsingu skilmálabreytingar.

 


Þarf að greiða stimpilgjald við breytingu láns úr erlendri mynt í íslenskar krónur?

Nei, það þarf ekki að greiða stimpilgjald af skilmálabreytingu.

  


Hvað lækkar höfuðstóllinn mikið?

Lækkunin tekur mið af myntsamsetningu og lengd lánasamnings. Lækkun höfuðstóls erlendra lána er 26% að meðaltali. Sem dæmi má nefna að erlent lán í JPY og CHF með lánstíma 37 ár getur lækka um allt að 28%. Útreikningur á lækkun höfuðstóls miðasta við gengi erlends láns á umsóknardegi.

Smelltu hér til að reikna út lækkun höfuðstóls og greiðslubyrði.

  


Hvað lækkar greiðslubyrðin mikið?

Greiðslubyrðin getur lækkað um allt að 41% miðað við að láninu sé breytt í verðtryggt lán til 40 ára og um allt að 20% ef miðað er við greiðslubyrði eftir greiðslujöfnun erlends láns.

  


Hvað vextir eru á láni í íslenskum krónum?

Verðtryggð lán verða með föstum 3,95% vöxtum í þrjú ár og möguleika á lengingu um eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Eftir það verða fastir vextir lánsins 5,25%.

Óverðtryggð lán verða með föstum óverðtryggðum vöxtum 6,00% í þrjú ár með lengingu í eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Þeir vextir breytast síðan í millibankavexti (REIBOR) + 1,50% en viðskiptavinum er einnig frjálst að skipta yfir í fasta verðtryggða 5,25% vexti.

  


Er hægt að breyta láni sem er í vanskilum?

Já það er hægt ef um er að ræða lítil vanskil sem ekki eru komin í lögfræðiinnheimtu. Lán sem komin eru í lögfræðiinnheimtu eru skoðuð sérstaklega.

 


Er hægt að breyta erlendu lán sem þegar er komið með greiðslujöfnun?

Já, það er hægt.

  


Gilda þessi úrræði fyrir bílalán í erlendri mynt?

Nei, Höfuðstólslækkun 3+1 gildir eingöngu fyrir fasteignaveðlán í erlendri mynt.

 


Er hægt að fá lækkun á höfuðstól lána sem eru ekki í erlendri mynt?

Nei, þessi úrræði taka aðeins til lána í erlendi mynt.

  


Er hægt að fá lækkun á höfuðstól láns í erlendri mynt án þess að breyta því í lán í íslenskum krónum?

Nei, lækkun höfuðstóls er háð því skilyrði að láninu sé breytt í verðtryggt eða óverðtryggt lán í íslenskum krónum. Ekki verður hægt að breyta láninu síðar í lán í erlendri mynt.

  


Er lækkun höfðustóls skattskyld?

Nei, stjórnvöld hafa gefið það út að lækkun höfuðstóls erlendra lán sem er almennt úrræði einstaklinga í greiðsluerfiðleikum myndi ekki stofn til skatta.

  


Ef stjórnvöld koma með önnur úrræði síðar, mun ég eiga rétt á þeim?

Ekki er að vænta frekari úrræða frá opinberum aðilum. En betri réttur, sem skapast vegna lagasetningar verður ekki af lántakendum tekinn.

 


Hvað ef erlend lán verða dæmd ólögleg?

Betri réttur sem skapast vegna dómsniðurstöðu verður ekki tekinn af lántakendum.

  


Hvað ef þessi úrræði duga lántakanda ekki?

Ráði fólk ekki við að greiða af lánum sínum þrátt fyrir þessi úrræði geta lántakendur átt kost á sértækri skuldaaðlögum (nánar hér) sem fer fram í núverandi viðskiptabanka lántakanda. Einnig geta lántakendur óskað eftir Greiðsluaðlögun samningskrafa (nánar hér) eða Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna (nánar hér) sem eru opinberar dómstólaleiðir.

  


Er uppgreiðslugjald á skuldbreytta láninu?

Ekkert uppgreiðslugjald er á láninu fyrstu 3 árin eða fyrstu 4 árin ef lántakandi hefur fengið lengingu á lægri vöxtum vegna skilvísi. Að þeim tíma liðnum er uppgreiðslugjald 2%.

  


Þarf ég að velja 40 eða 25 ára lánstíma?

Nei, lántaka er boðið að halda óbreyttum lánstíma eins og núverandi lánaskilmálar kveða á um en í boði er að lengja eða stytta lánstíma í 40 ár eða 25 ár.

  


Geta lántakar sem hafa yfirtekið lán eftir 15. október 2008 fengið lækkun höfuðstóls?

Nei, höfuðstólslækkunin er einungis fyrir þá sem voru skráðir lántakar fyrir 15. október 2008.

   


Er í boði að sækja um greiðslujöfnun fasteignaveðláns skv. lögum eftir að hafa fengið höfuðstólslækkun?

Nei, það er ekki hægt, þar sem ekki er til greiðslusaga aftur í tíma eftir að höfuðstólslækkunin er gengin í gegn.

 


Er hægt að segja sig úr Höfuðstólslækkun 3+1 og greiða aftur af erlenda láninu?

Nei, það er ekki hægt.

 


Er hægt að breyta hluta af láni og fá lækkun höfuðstóls?

Nei, það er ekki hægt.

 


Getur lántaki, sem hefur fengið skilmálabreytingu á erlendu láni, sótt um Höfuðstólslækkun 3+1?

Já, fyrri skilmálabreytingar útiloka ekki Greiðsluskjól 3+1 nema ef lánstíminn hefur lengdur eftir 1. desmeber 2009.

 


Er hægt að skuldbreyta láni sem er í greiðslujöfnun í Höfuðstólslækkun 3+1?

Já.

 

 

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is