Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Innköllun

Samkvæmt heimild í 100. gr. a. í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. þáverandi 5. gr. laga nr. 129/2008 um heimild til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði ákvað stjórn Fjármálaeftirlitsins þann 21. mars 2009 að Fjármálaeftirlitið tæki yfir vald hluthafafundar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf (SPRON) og skipaði því skilanefnd.  Með lögum nr. 44/2009 varð skilanefnd SPRON að bráðabirgðastjórn.  Skv. 3. mgr. 100. gr. a laga nr. 161/2002 lauk störfum bráðabirgðastjórnar þann 23. júní 2009 er Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði SPRON slitastjórn og hefur hún meðal annars með höndum meðferð krafna á hendur bankanum meðan á slitameðferð stendur.

Frestdagur er  30. október 2008 sbr. 4. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.  Upphafsdagur slitameðferðar miðast við uppkvaðningu Héraðsdóms Reykjavíkur um skipun slitastjórnar þann 23. júní 2009, sbr. 2. ml. 3. mgr. 102. gr.  laga nr. 44/2009. 

Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur SPRON eða eigna í umráðum bankans, að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir slitastjórn bankans innan sex mánaða frá fyrri birtingu þessarar innköllunar í Lögbirtingablaði, þ.e. fyrir 22. janúar 2010.  Kröfulýsingar skulu hafa borist slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991.

Kröfulýsingar skulu sendar til:
Slitastjórn SPRON
Lágmúla 6
108 Reykjavík

Vegna áðurnefndra lagaákvæða er því beint til kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram sundurliðuð fjárhæð kröfu þann 23. júní 2009.

Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt.  Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns.  Slíkum kröfulýsingum skal fylgja íslensk þýðing en þó er heimilt að lýsa kröfu á ensku án þess að þýðing fylgi.  Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum á íslensku eða ensku.

Sé kröfum ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 og telst hún því fallin niður gagnvart SPRON nema undantekningar í 1. – 6. tölulið lagaákvæðisins eigi við.
Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar) að því er varðar viðkomandi kröfu.

Hér með er boðað til kröfuhafafundar og verður hann haldinn miðvikudaginn 17. mars 2010 kl. 10:00, að Hilton Hotel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.  Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur bankanum.  Á fundinum verður fjallað um skrá yfir lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar að því leyti sem hún liggur fyrir.  Skrá yfir lýstar kröfur verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur bankanum að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund.

Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu bankans, www.spron.is.  Slitastjórn beinir eftirtöldum tilmælum til kröfuhafa:
a) Að upplýsa um tölvupóstfang sitt eða umboðsmann sinn í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga.
b) Að tilgreina bankareikning til að auðvelda útgreiðslu, þegar og ef til hennar kemur.
c) Að lýsa kröfum sem fyrst eftir birtingu innköllunar.

Reykjavík 14. júlí 2009

Slitastjórn SPRON

Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl.
Hlynur Jónsson hdl.
Jóhann Pétursson hdl.

Fyrirspurnir má senda á netfangið slitastjorn@spron.is
 

Skrifstofa Dróma hf. (Slitastjórn SPRON og Frjálsa) er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 10:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.


.